|
Vélaborg hefur haft sterka stöðu sem þjónustuaðili íslensks landbúnaðar undanfarin ár. Fjölmargir bændur hafa kosið að halda tækjakost frá félaginu sem þjónustað hefur LELY, John Deere, Case, Krone o.fl. þekkt tæki sem íslenskir bændur eiga. Við hyggjumst viðhalda þessari sterku stöðu innan íslensks landbúnaðar með aðstoð LELY International. VB Landbúnaður (Vélaborg Landbúnaður) hóf starfsemi sína í júní 2009. Síðan þá hefur félagið verið rekið samhliða Vélaborg en eins og nafnið gefur til kynna er öll áhersla félagsins á landbúnað. LELY hefur alla tíð lagt mikla áherslu á að eiga hlutdeild í dreifingar- og söluaðilum sínum og það má segja að þessi samdráttur sem hefur orðið á Íslandi hafi aukið áhuga LELY fyrir því að hasla sér völl með okkur hér á landi. LELY hefur alltaf sýnt Íslandi mikinn áhuga, enda er markaðs-hlutdeild þeirra í mjaltaþjónum á Íslandi sú hæsta í heiminum. LELY hefur einnig í boði mikið úrval heyvinnuvéla sem af mörgum eru taldar þær allra bestu sem völ er á. Það er skemmst frá því að segja að í byrjun ágúst s.l. skrifuðum við undir samninga um að LELY eignist hlutdeild í VB Landbúnaði (Vélaborg Landbúnaður ehf.) og verður LELY þar með meðeigandi okkar í því félagi. Eins og gefur að skilja verður aðaláherslan til að byrja með á LELY mjaltaþjóna, heyvinnuvélar, hreinsivörur og aðrar vörur og þjónustu sem Lely býður upp á. Framtíðarhugsunin er sú að VB Landbúnaður muni taka yfir meira af landbúnaðararmi Vélaborgar. LELY er eins og margir þekkja mjög öflugt félag í framleiðslu landbúnaðartækja og þeir ætla sér stóra hluti á Íslandi á næstu árum. Við treystum því að grunnatvinnuvegum Íslendinga verði gert hátt undir höfði nú þegar við eigum undir högg að sækja, því nauðsynlegt er að við sem þjóð séum sjálfum okkur nóg um sem flesta hluti á þeim árum sem að framundan eru. Það hefur verið eitt af forgangsverkefnum Vélaborgar undanfarið að okkar ágætu viðskiptamenn - bændur - myndu ekki lenda í neinum vandræðum vegna þess ástands sem skapast hefur á Íslandi. Landbúnaður er og verður ein af grunnatvinnugreinunum okkar íslendinga og þar verða hjólin að snúast hvort sem vel eða illa árar. Með stofnun VB Landbúnaðar er orðið til öflugt félag með 100 milljónir í eigið fé með mjög öflugan bakhjarl sem á að geta þjónustað íslenskan landbúnað vel í framtíðinni. VB Landbúnaður og Vélaborg munu hafa með sér margvíslegt samstarf viðskiptamönnum okkar til hagsbóta. Með þessu móti höfum við eflt landbúnaðararminn okkar verulega með aðkomu LELY og styrkir þetta heildina til framtíðar. Við fylgjum þér inn í framtíðina. Kær kveðja |
|
|
|